In my life.....

miðvikudagur, janúar 17, 2007

Ég gifti mig í fyrra!!


Ágæta tæknideild.


Á síðasta ári fékk ég mér uppfærslu úr Boyfriend 5.0 í Husband 1.0.


Fljótlega á eftir tók ég eftir því að nýja forritið átti í örðugleikum með
að aðlagast þeim forritum sem fyrir voru og takmarkaði til dæmis aðgang minn
að blóma og skartgripaskránum sem hafði verið ekkert mál að opna með gamla
forritinu Boyfriend 5.0. Ekki nóg með þetta heldur eyddi Husband 1.0 mörgum
mikilvægum forritum eins og t.d. Hot-sex 1.0 og Romance 9.9 en setti inn
önnur forrit sem ég kærði mig ekkert um eins og NBA 3.0 og Formula 6.0.
Forritið Conversation 8.0 virkar ekki lengur og ef ég ræsi upp HouseCleaning
2.6 hrynur kerfið. Ég hef prófað viðgerðarforritið Nagging 5.3 til að laga
þetta en ekkert gengur.

Hvað get ég gert ? Kveðja Baby

Ágæta Baby

Hafa ber í huga að Boyfriend 5.0 er eingöngu skemmtiforrit meðan að Husband
1.0 er stýrikerfi. Prófaðu að slá inn skipunina "C:\ITHOUGHT YOU LOVED ME"
og ræsa síðan upp viðgerðarforritið Tears 6.2. Stýrikerfið Husband 1.0 ætti
að bregðast við með því að ræsa sjálkrafa upp Guilty 3.0 og Flowers 7.0.
Passaðu þig á að ræsa ekki upp Beer 6.1 sem býr til "Snoring Loudly"
hljóðskrár eða forritið MotherInLaw 1.0. Ekki reyna heldur að ræsa annað
Boyfriend forrit. Þetta eru forrit sem stýrikerfið Husband 1.0! styður ekki
og gætu valdið algjöru kerfishruni. Í stuttu máli er Husband 1.0 frábært
forrit, en er með takmarkað minni og er ekki fljótt að læra að vinna með
nýjum forritum. Þú gætir prófað að kaupa hjálparforrit til að bæta virkni
Husband 1.0. Við hér á tæknideildinni mælum sérstaklega með HotFood 3.0,
Lingerie 5.3 og Keep-a-nice-body 10.1


Kær kveðja


Tæknideildin

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home